Mynd með frétt03. feb. 2012

"En það er lokað"

sagði einn drengur þegar hann langaði að fara í heimsókn á Kisudeild en það var ekki búið að opna hurðina, hann ætlaði nefnilega að fara að leika með Playmó. Börnunum finnst alltaf jafn skemmtilegt að fá að flakka um allan skólann þegar opið er milli deilda.... [ nánar ]
Mynd með frétt27. jan. 2012

"Mig langar í plokkfisk"

sagði eitt af börnunum sem var Natalíu til ráðuneytis við að útbúa matseðilinn fyrir febrúar.... [ nánar ]
Mynd með frétt27. jan. 2012

Ömmu- og afakaffi og fagnaðarfundur

Börnin voru glöð með hvað margar ömmur og afar og langömmur og langafar gáfu sér tíma til að koma í heimsókn í leikskólann og sýndu þeim hvar þau halda til á daginn. Börnin buðu síðan í kaffi og kleinur í salnum og þar skoðuðu þau saman gömlu munina sem voru á sýningunni.... [ nánar ]
Mynd með frétt20. jan. 2012

Þorrinn að byrja, Bárður mætti og opnum sýningar

Þegar þorrinn hefst kemur Bárður og það verður þjóðlegur matur í hádeginu. Að þessu sinni koma Bárður með sverð, öxi og boga og öll börnin fengu að prófa að skjóta af boga. Á Fagnaðarfundinum sungum við lög sem tengjast þorranum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt13. jan. 2012

Gamli tíminn og fagnaðarfundur

Í vikunni fékk leikskólinn lánaðan leikfangakassa frá Þjóðminjasafninu. Í kassanum voru ýmis leikföng s. s. leggir og skel, ýmis horn, tölur í bandi, trédýr og ýmislegt fleira forvitnilegt. ... [ nánar ]
Mynd með frétt06. jan. 2012

Opið á milli deilda og jólin kvödd

Það var eftirvænting í loftinu, því það átti að vera opið á milli deilda og börnunum þykir einstaklega skemmtilegt að fara í heimsókn á hinar deildarnar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt05. jan. 2012

Gleðilegt ár

Óskum börnum og fjölskyldum þeirra gleðilegs árs með þakklæti fyrir samveruna á liðnu ári. Á myndinni til hliðar sjáum við hvernig barn túlkaði áramótin og það sem það sá á himninum.... [ nánar ]
Mynd með frétt23. des. 2011

Jólin í gamla daga

Elstu börnin lögðu leið sína í Sivertsenhús í Hafnarfirði til að kynnast því hvernig jólin voru í gamla daga. Þessa vikuna var að öðru leyti lögð áhersla á að skapa rólegheit og leikurinn var í algleymingi.... [ nánar ]
Mynd með frétt16. des. 2011

Jólaball

Jólaballið var ánægjulegt og það var mikið sungið og mikið dansað. Góður matur og ís í eftirmat.... [ nánar ]
Mynd með frétt16. des. 2011

Tónleikar og leikrit

Á miðvikudaginn komu fjórir nemendur úr tónlistarskólanum og spiluðu fyrir börnin. Þau kynntu hljóðfærin fyrir börnunum, en þeta voru allt málmblásturhljóðfæri.... [ nánar ]
Mynd með frétt16. des. 2011

Heimsókn á Hönnunarsafnið, jólaskraut og jólatré

Börnum í elsta hóp var boðið að koma í hönnunarsafnið og búa til jólaskraut á verkstæðinu. Börnin bjuggu til jólapoka og kramarhús.... [ nánar ]
Mynd með frétt09. des. 2011

Jólasveinar á leið til byggða

Börn fylgjast vel með því sem er að gerast og eru með ýmislegt á hreinu, oft meira en maður heldur. Einn drengur í elsta hóp vissi að bráðum leggja jólasveinar af stað til byggða til að gefa í skóinn. Hann teiknaði mynd þar sem... [ nánar ]
Mynd með frétt07. des. 2011

Kirkjuferð

Eina og alltaf á aðventunni fóru öll börnin í leikskólanum í Vidalínskirkju. Þar var tekið hlýlega á móti okkur og við áttum þarna notalega stund. Börnin voru eins og ljós og sungu eins og englar.... [ nánar ]
Mynd með frétt06. des. 2011

Samvera og aðventusöngur

Það var ánægjulegt hvað margir foreldrar gátu gefið sér tíma til að fá sér súkkulaði með börnunum sínum í morgun og verið svo í aðventusöngnum.... [ nánar ]
Mynd með frétt02. des. 2011

Aðventusöngur og danssýning

Meðal þess sem gert var í vikunni var að börnin teiknuðu myndir á gluggana, kveikt var á spádómskertinu, það var byrjað að skreyta skólann. Í samvinnustundinni var talan 8 tekin til skoðunar og einnig ýmis hugtök eins og fremst, aftast, í miðjunni, næst og fjærst. Ennfremur sýndu 5 stúlkur dans sem þær lærðu í dansfimi.... [ nánar ]
Mynd með frétt25. nóv. 2011

Piparkökubakstur, aðventukrans, leikur og snjór

Það var að vanda mikið að gera þessa vikuna eins og allar aðrar vikur. Það voru bakaðar piparkökur og börnin á kisudeild bjuggu til aðventukransinn okkar.... [ nánar ]
Mynd með frétt16. nóv. 2011

Fagnaðarfundur og samvinnustund

Í tilefni af degi íslenskrar tungu var ákveðið að hafa fagnaðarfund fyrir hádegi. Farið var með ljóð og sungnar vísur eftir Jónas Hallgrímsson. ... [ nánar ]
Mynd með frétt15. nóv. 2011

Foreldrar í morgunmat

Það var ánægjulegt hversu margir foreldrar gáfu sér tíma til að borða morgunmat með börnunum sínum í morgun, börnin eru mjög glöð að hafa mömmu og pabba með sér í matnum... [ nánar ]
Mynd með frétt11. nóv. 2011

Fagnaðarfundur og ferð á pósthúsið

Í morgun var fagnaðarfundur sem börnin á Kisudeild sáu um. Eftir matinn fóru elstu börnin niður á pósthús með tvö umslög sem þau póstlögðu.... [ nánar ]
Mynd með frétt04. nóv. 2011

"Ég ætla sko að skreppa og leika á Bangsadeild/Kanínudeild/Kisudeild"

Börnin nutu þess til fulls að fara í heimsóknir á hinar deildar leikskólans. Þar hittu þau vini sína eða systkini sín og einnig rifjuðu þau upp góðan tíma frá því þau voru á Kanínudeildinni. ... [ nánar ]
Mynd með frétt01. nóv. 2011

Afmæli Kirkjubóls og matarnefnd

Börn og starfsfólk safnaðist saman í salnum í morgun og sungu afmælissönginn fyrir leikskólann og Baldur Loga sem einnig átti afmæli og að síðustu ... [ nánar ]
Mynd með frétt28. okt. 2011

Fyrsti fagnaðarfundur og fundur í umhverfisnefnd

Í morgun var fyrsti fagnaðarfundur vetrarins og var hann í umsjá Kanínudeildar. Við tókum hann upp á myndband... [ nánar ]
Mynd með frétt26. okt. 2011

Morgunmatur með foreldrum og samvinnustund

Það voru margir foreldrar sem gáfu sér tíma til að fá sér að borða með börnum sínum í morgunn og var það mjög ánægjulegt. Börnunum finnst mikið sport að mamma og/eða pabbi setjist niður og borði með þeim morgunmat. Að þessu sinni var súrmjólk og/eða morgunkorn. Eftir hádegismatinn var samvinnustund hjá elstu börnunum.... [ nánar ]
Mynd með frétt21. okt. 2011

Vetri heilsað með dansiballi

Það vafðist ekki fyrir börnunum hvað þau ætluðu að gera þegar þau komu í salinn og það var búið að skreyta hann og kveikja á diskókúlunni og ljósinu.... [ nánar ]
Mynd með frétt17. okt. 2011

Tónlistarnámskeiði lokið

Það hefur varla farið fram hjá neinum að síðustu sex vikurnar hefur verið tónlistarnámskeið hjá Lindu Margréti tónlistarkennara í Kirkjubóli . Hér eru myndbönd frá 3ja tímanum sem var 23. september. ... [ nánar ]
Mynd með frétt11. okt. 2011

Góðir gestir í heimsókn

Fulltrúar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í fylgd Loga og Glóðar komu í heimsókn til elstu barnanna í leikskólanum í dag.... [ nánar ]
Mynd með frétt07. okt. 2011

Framkvæmdir á lóðinni

Það hefur ekki farið fram hjá foreldrum að það hafa verið framkvæmdir í garðinum okkar. Við erum ánægðar að sjá hvað það hefur orðið mikil andlitslyfting á svæðinu.... [ nánar ]
Mynd með frétt28. sep. 2011

Laufskógur og leikhús í Kúlu

Börnin í rauðuhópunum drifu sig út á miðvikudagsmorgunn til að tína laufblöð og það var næstum fullur skógur af laufblöðum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt22. sep. 2011

Í berjamó

Það voru kátir krakkar af Kisudeild sem skoppuðu í hraunið í fyrsta sinn í haust. Þau höfðu með sér box til að tína ber í. ... [ nánar ]
Mynd með frétt21. sep. 2011

Fyrsta samvinnustundin

Börnin í bláuhópunum voru full af áhuga og eftirvæntingu þegar þau mættu í fyrstu samvinnustundina. ... [ nánar ]
Mynd með frétt20. sep. 2011

Fjölmenni í morgunmatnum

Börnin buðu foreldrum sínum að koma og borða með þeim hafragraut í morgun. Við vitum að við erum með yndisleg börn og frábæra foreldra, en það kom okkur samt gleðilega á óvart hversu margir foreldrar gáfu sér tíma til að borða með börnum sínum, börnunum til mikillar gleði. ... [ nánar ]
Mynd með frétt19. sep. 2011

Hann tók pollinn okkar !!!!!

í rigningunni í morgun myndaðist pollur á leiksvæðinu, en það á ekki að gerast. Því var farið að athuga með dæluna, en hún sló alltaf út. Þá var að hringja í rafvirkjann. Börnin fylgdust grannt með framgangi verksins og þegar þau litu við var pollurinn horfinn við mismikla gleði þeira en létti hjá starfsfólkinu.... [ nánar ]
Mynd með frétt13. sep. 2011

Sveit í bæ.

Börnin í bláahóp Bangsadeildar fóru í fyrstu ferð sína í hraunið þetta haustið. Það er heilmikið ævintýri að fara í hraunið og í þetta sinn var berjatínsla aðalverkefnið. Þegar maður er í hrauninu er eins og maður sé komin uppí sveit. ... [ nánar ]
Mynd með frétt09. sep. 2011

Hvað segir ljónið?

Það var fjölbreytt og lærdómsrík stund hjá börnunum í fyrsta tíma tónlistarnámskeiðsins. þau lærðu ný lög, æfðu sig í að syngja hratt og hægt, veikt og sterkt og einnig að spila á hljóðfæri og síðast en ekki síst fengu þau ljónagrímu og bjuggu til hljóð eins og ljón.... [ nánar ]
Mynd með frétt02. sep. 2011

Hvað langar okkur að borða í september?

Í hverjum mánuði koma 4 börn til fundar við matráðinn og segja henni hvað þau langar að fá að borða.... [ nánar ]
Mynd með frétt25. ágú. 2011

Frumkvæði, sköpun og

Í blíðunni í dag tóku Hildur Karitas og Eva Sóley sig til og teiknuðu myndir og síðan sögðu þær hinum börnunum sögur út frá teikningunum og þau sátu og hlustuðu af mikilli athygli... [ nánar ]
21. ágú. 2011

Sjáumst 22. ágúst - verkfalli aflýst

Það var ánægjulegt að heyra í fréttum á laugardagskvöld að samninganefndir Félags leikskólakennara og Sveitarfélaganna hefðu skrifað undir samning og aflýst verkfalli. Því verður leikskólinn opin eins og venjulega mánudaginn 22. ágúst.... [ nánar ]
19. ágú. 2011

Fyrirhugað verkfall

Nú á föstudegi eftir fund hefur ekkert breyst í kjaradeilu leikskólakennara. Að öllu óbreyttu hefst því verkfall næstkomandi mánudag. Ljóst er að verkfall mun hafa í för með sér mikla röskun fyrir leikskólabörn, foreldra þeirra og starfsfólk og höfum við verið að vona að deilan leystist áður en til þessa kæmi. Við höfum verið lánsöm á Kirkjubóli þar sem hér starfar vel menntað, reynslumikið og fært fólk. Allar deildar verða því lokaðar ef til verkfalls kemur. Við hvetjum foreldra að fylgjast með fréttum af þróun mála.... [ nánar ]
Mynd með frétt12. ágú. 2011

Leikskólabyrjun og pappírsgerð

Það sem hefur einkennt þessa viku fyrir utan sólina og blíðuna, er að börnin bjuggu til pappír sem lið í endurvinnslunni og fimm ný börn hófu leikskólagöngu sína. Við bjóðum börnin og foreldra þeirra hjartanlega velkomin í Kirkjubóls samfélagið.... [ nánar ]
Mynd með frétt28. júl. 2011

Fyrsta uppskera úr skólagörðunum.

Sex börn skruppu í skólagarðana og tóku upp svolítið af salatinu. ... [ nánar ]
Mynd með frétt27. júl. 2011

Maja maríuhæna kom í heimsókn

Mamma Gylfa og Jóhanns keypti kál út í búð og það var leynigestur í því. Þegar betur var að gáð var þetta lítil maríuhæna sem umsvifalaust var skírð Maja.... [ nánar ]
Mynd með frétt22. júl. 2011

Fámennt og góðmennt

Í þessari viku hefur barnafjöldinn verið í lágmarki. Börnin hafa notið þess að leika saman öll á sömu deildinni.... [ nánar ]
Mynd með frétt15. júl. 2011

Líf og fjör(uferð)

Eins og endranær var mikið að gera þessa vikuna. Börnin í bláu- og grænuhópum fóru bæði niður í fjöru og í hraunferð. Yngstu börnin nutu blíðunnar í garðinum.... [ nánar ]
Mynd með frétt08. júl. 2011

Sól og blíða

Börnin hafa aðhafst ýmislegt í þessari viku í góða veðrinu. Farið var í hraunið og drengirnir í bláa hóp tóku að sér að leiðbeina og hjálpa börnunum í græna hóp sem voru að fara í sína fyrstu hraunferð. Börnin í rauðahóp fóru í göguferð niður á leikvöll sem er fyrir neðan Lindarflöt. Börnin í bláa og grænahóp fóru líka í gönguferð þangað og þeir skrupp líka niður að læk með háfana og reyndu að veiða fisk. Börnin sem vildu fóru í skólagarðana að vökva og reyta arfa. Svo nutum við góða veðursins í garðinum og meðal annars var sullað. Sjá fleiri myndir í myndasafninu. ... [ nánar ]
Mynd með frétt29. jún. 2011

Leikskólahátíð

Skapandi sumarhópur ungmenna í Garðabæ bauð elstu börnum leikskólans í hátíð á Garðatorgi í gær.... [ nánar ]
Mynd með frétt24. jún. 2011

Föstudagsgleði

Við höfum fengið frábæra viku, gott veður, sól og þurrt. Í vikunni hefur því verið heilmikil útivera og ýmislegt í boði þar.... [ nánar ]
Mynd með frétt21. jún. 2011

Skólagarðar

Nú erum við búin að fara tvisvar með börn á eldri deildunum í skólagarðana og setja niður bæði kartöflur og grænmeti. Við förum svo í hverri viku í sumar og lítum eftir beðinu, reitum arfa og vökvum. Þetta er skemmtileg vettvangsferð fyrir börnin og tekur dágóðan tíma bæði að ganga fram og til baka og svo að sinna garðyrkjunni. ... [ nánar ]
Mynd með frétt21. jún. 2011

Hestar og hátíð

Fjölskylduhátíð foreldrafélagsins þann 7. júní tókst vel og vorum við bara nokkuð sátt með veðrið þann daginn. ... [ nánar ]
Mynd með frétt06. jún. 2011

Ýmsar fréttir

Nýtt fréttabréf og matseðill fyrir júnímánuð er komið inn á heimasíðuna. Á morgun er svo árleg fjölskylduhátíð foreldrafélagsins kl. 15:15-17:00 og við vonumst til að sjá sem flesta. Síðasta samvinnustundin hjá Bláa hóp var föstudaginn 27. maí og var stundin að vanda hátíðleg og skemmtileg. ... [ nánar ]
Mynd með frétt25. maí 2011

Brúðubíllinn í Garðabæ

Öll börnin í leikskólanum fóru á miðbæjarflötina við Garðatorg að horfa á leikritið "Duddurnar hans Lilla". Sem betur fer vorum við heppin með veður en það var bæði hlýrra en verið hefur og bjartara.... [ nánar ]
Mynd með frétt20. maí 2011

Blái hópur í Vatnaskógi

Hefð er fyrir þvi hér í Kirkjubóli að fara með elstu börnin sem eru að ljúka sinni leikskóladvöl í dagsferð í Vatnaskóg.... [ nánar ]
Mynd með frétt16. maí 2011

Opið hús

Opið hús var í leikskólanum laugardaginn 7. maí. Þá gafst foreldrum, vinum og vandamönnum barnanna tækifæri á að skoða leikskólann og verk barnanna. ... [ nánar ]
Mynd með frétt04. maí 2011

Hreinsunarátak

Við í leikskólanum tökum þátt í hreinsunarátaki Garðabæjar og vorum bæði í gær og í dag að hreinsa nánasta umhverfi leikskólans.... [ nánar ]
Mynd með frétt02. maí 2011

Nýr matseðill og fréttabréf fyrir maí mánuð

Nú er kominn nýr matseðill og fréttabréf fyrir maí inn á heimasíðuna, sjá hér hægra megin á forsíðu. Við minnum foreldra á að nýta sér upplýsingatöflur í fataherbergjum á deildunum til að fá upplýsingar um daglegt starf. ... [ nánar ]
Mynd með frétt29. apr. 2011

Sumargleði

Í dag var mikið fjör hjá okkur þar sem við heilsuðum sumri með því að hafa opið á milli deilda og dansiball í salnum. Það er gaman að segja frá því að í dag er einnig alþjóðlegi dansdagurinn.... [ nánar ]
Mynd með frétt27. apr. 2011

Umhverfisnefndin flokkar og telur í salnum

Strákarnir í bláa hóp tóku sig til og aðstoðuðu við að telja og flokka plastflöskur sem höfðu safnast upp. Þetta eru hörkuduglegir vinnumenn sem flokkuðu flöskurnar fyrst eftir stærð og svo var talið í pokana. ... [ nánar ]
Mynd með frétt27. apr. 2011

Gleðilegt sumar.

Þó að veðrið hafi verið ansi hráslagalegt upp á síðkastið er alltaf gaman að komast út að leika. Eitt niðurfallið í garðinum var stíflað í dag og þá myndaðist þessi líka stórskemmtilegi pollur. Okkur þótti hann nú heldur mikill og kölluðum því til aðstoðar menn frá bænum sem brugðust snöggir við. ... [ nánar ]
Mynd með frétt20. apr. 2011

Páskafrí

Leikskólinn er lokaður frá 21.apríl - 25. apríl og opnar aftur þriðjudaginn 26.apríl. Gleðilega páska og gleðilegt sumar.... [ nánar ]
Mynd með frétt19. apr. 2011

Gulur dagur

Þar sem sólin hefur verið eitthvað lítið fyrir að sýna sig undanfarna daga var kærkomið að fá gula litinn og birtuna inn til okkar í leikskólann.... [ nánar ]
Mynd með frétt15. apr. 2011

Gaman saman

Það er búið að vera mikið að gera undanfarið í leikskólanum eins og alltaf. Börnin hafa gróðursett fræ sumarblóma, búið til páskaskraut og svo er daglega starfið endalaus uppspretta nýjunga, gleði og gamans.... [ nánar ]
Mynd með frétt08. apr. 2011

Aðgerðaráætlun vegna skólastefnu Garðabæjar

Hver leikskóli í Garðabæ gerir sína aðgerðaráætlun varðandi innleiðingu á nýrri skólastefnu. ... [ nánar ]
Mynd með frétt05. apr. 2011

Þróunarverkefnið "Lesmál- mál til komið að lesa"

Á Kirkjubóli höfum við tekið virkan þátt í þessu skemmtilega þróunarverkefni sem hófst í fyrra og stendur einnig yfir á þessu skólaári. Markmið verkefnisins er að auka við orðaforða barna, þróa markvissar sögustundir í leikskólanum og fræða foreldra.... [ nánar ]
05. apr. 2011

Matseðill og fréttabréf í apríl

Nú er tilbúinn nýr matseðill og fréttabréf fyrir apríl mánuð. Sjá flýtileið hérna á forsíðu hægra megin.... [ nánar ]
04. apr. 2011

Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Latibær

Börnin í græna og bláa hóp fóru síðastliðinn fimmtudag í Háskólabíó að hlýða á Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja verkið um Tobba Túbu.... [ nánar ]
Mynd með frétt22. mar. 2011

Skemmtileg útivera í fönninni

Það er alltaf gaman að leika sér í nýföllnum snjó á góðum vetrardegi. Börnin skemmtu sér hið besta á slíkum degi fyrir stuttu þar sem þau fengu sýnishorn af alls konar veðri.... [ nánar ]
16. mar. 2011

Starfsafmæli Lilju

Í janúar síðastliðnum var starfsfólk sem hafði yfir 25 ára starfsaldur hjá Garðabæ heiðrað sérstaklega og var hún Lilja á Kisudeild í þeim hópi.... [ nánar ]
Mynd með frétt09. mar. 2011

Öskudagsgleði

Það hefur verið mikil gleði í húsinu á þessum fallega en ískalda öskudegi. Fyrst í morgun var opið á milli deilda og þau börn sem vildu fengu andlitsmálningu.... [ nánar ]
04. mar. 2011

Auglýst eftir starfsmanni.

Leikskólinn Kirkjuból auglýsir eftir starfsmanni í 100% starf á heimasíðu Garðabæjar. ... [ nánar ]
01. mar. 2011

Nýtt fréttabréf og ársskýrsla yfir starf fimm ára barna

Það sem er helst á döfinni í marsmánuði er að finna í fréttabréfi mánaðarins. ... [ nánar ]
Mynd með frétt01. mar. 2011

Góðverkadagar

Vikuna 21.-25. febrúar voru Góðverkadagar í samfélaginu en markmið þeirra er að bæta mannlífið með hjálpsemi og vináttu. ... [ nánar ]
Mynd með frétt18. feb. 2011

Konudagsgleði

Í morgun héldum við upp á konudaginn sem er nú um helgina. Það var mikið húllumhæ og gaman hjá okkur.... [ nánar ]
Mynd með frétt15. feb. 2011

Fréttabréf foreldrafélagsins

Nú er komið út nýtt fréttabréf frá foreldrafélaginu um það sem er á döfinni hjá þeim. ... [ nánar ]
Mynd með frétt10. feb. 2011

Búið að lagfæra gólf í salnum

Í salnum er gryfja en lokin yfir henni voru orðin gömul, sigin og trosnuð þannig að nauðsynlegt var að loka þessu betur og lagfæra.... [ nánar ]
Mynd með frétt07. feb. 2011

Dagur leikskólans á Kirkjubóli

Haldið var upp á dag leikskólans föstudaginn 4. febrúar síðastliðinn. Margir foreldrar heimsóttu okkur, fengu sér kaffi og fylgdust með fagnaðarfundi í sal.... [ nánar ]
Mynd með frétt04. feb. 2011

Ömmu og afakaffi og gamli tíminn á Kirkjubóli

Ömmu og afakaffi á Kirkjubóli var mjög vel sótt að vanda. Síðustu ár hefur myndast hefð fyrir því að bjóða ömmum, öfum, langömmum og langöfum í heimsókn á þorranum og skoða sýningu á gömlum munum í sal leikskólans. ... [ nánar ]
Mynd með frétt04. feb. 2011

Fundur hjá umhverfisnefnd

Elstu börnin það er börnin í bláa hóp eru fulltrúar í umhverfisnefnd leikskólans. Nefndin fundaði þann 24. janúar síðastliðinn.... [ nánar ]
Mynd með frétt25. jan. 2011

Þorrablót á Bóndadag

Bóndadagur var vel heppnaður og mikið um að vera í leikskólanum.... [ nánar ]
Mynd með frétt20. jan. 2011

Síðasti danstíminn á Kanínudeild - myndband

Nú er komið inn á heimasíðuna myndband frá síðasta danstímanum hjá yngstu börnum leikskólans. ... [ nánar ]
06. jan. 2011

Þrettándinn

Við dönsuðum í kringum jólatréð og kvöddum jólin á þeim nótunum. Núna fer jólaskrautið að hverfa ofan í geymslukassa og ný verkefni taka við. Vinna í tengslum við gamla tímann og þorrann hefst um miðjan janúar mánuð. ... [ nánar ]
Mynd með frétt03. jan. 2011

Skólaþing Kirkjubóls

Nú í janúar höldum við skólaþing þar sem foreldrar og starfsfólk fá tækifæri til að hittast, ræða saman og taka þátt í að innleiða markmið nýrrar skólastefnu Garðabæjar fyrir árin 2010-2013.... [ nánar ]
03. jan. 2011

Gleðilegt nýtt ár

Þá er nýtt ár með nýjum verkefnum gengið í garð. Hér á heimasíðunni er hægt að kynna sér nýtt fréttabréf fyrir janúar mánuð og einnig matseðil. Okkur langar að vekja sérstaka athygli á skólaþingi sem verður næstkomandi þriðjudag 11. janúar klukkan 17:15.... [ nánar ]
Mynd með frétt21. des. 2010

Gleðileg jól

Starfsfólk Kirkjubóls óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með kæru þakklæti fyrir samveruna á árinu sem er að líða. ... [ nánar ]
Mynd með frétt17. des. 2010

Jólaball Kirkjubóls

Var í morgun og mikið var nú gaman hjá okkur. Við byrjuðum á því að dansa í kringum jólatréð í salnum rétt fyrir klukkan 10. ... [ nánar ]
Mynd með frétt16. des. 2010

Jólatréð skreytt

Í dag skreyttu strákarnir í bláa hóp jólatréð okkar í salnum.... [ nánar ]
Mynd með frétt10. des. 2010

Kirkjuferð

Börnin heimsóttu Vídalínskirkju í morgun. Yngstu börnin á Kanínudeild voru í leikskólanum og skemmtu sér í salnum.... [ nánar ]
Mynd með frétt10. des. 2010

Bókalestur

Það er gaman að verða vitni að því þegar börnin yfirfæra það sem þau heyra í bókum og sögum yfir í leikinn. ... [ nánar ]
Mynd með frétt09. des. 2010

Súkkulaði að morgni

Við þökkum fyrir samveruna í leikskólanum þegar foreldrar settust niður með börnum sínum og þáðu heitt súkkulaði og brauðbollur.... [ nánar ]
Mynd með frétt03. des. 2010

Fyrsta aðventustundin á mánudaginn var

Kveikt var á Betlehemskertinu og Lilja var forsöngvari. Við sungum jólalög saman og svo bauð Kisudeild upp á piparkökur.... [ nánar ]
Mynd með frétt01. des. 2010

Fréttabréf og matseðill fyrir desember mánuð.

Hér á flipa hægra megin á heimasíðunni er hægt að skoða fréttabréfið og matseðilinn. Að venju verða þessar upplýsingar einnig sendar heim með tölvupósti.... [ nánar ]
Mynd með frétt26. nóv. 2010

Ljós og skuggi á Kanínudeild

Yngstu börnin í leikskólanum voru að leika sér með ljós og skugga í gær. ... [ nánar ]
Mynd með frétt26. nóv. 2010

"Grýla og jólasveinarnir"

Þórdís Arnljótsdóttir flutti leikrit um Grýlu og jólasveinana og var sýningin í boði foreldrafélagsins.... [ nánar ]
Mynd með frétt24. nóv. 2010

Jólaundirbúningur hafinn

Tíminn flýgur áfram og nú er jólaundirbúningur hafinn. Í dag var bakað á öllum deildum og fyllti piparkökuilmur húsið. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. nóv. 2010

Danssýning

Dagný Björk danskennari var með síðasta danstímann í dag. Foreldrum frá Kisu- og Bangsadeild var boðið að koma og fylgjast með dansinum og var virkilega góð mæting og fullt af áhorfendum.... [ nánar ]
Mynd með frétt19. nóv. 2010

Síðasti danstíminn verður næsta þriðjudag, 23.nóvember.

Það er breyting frá auglýstum tíma á fréttabréfi fyrir nóvember þar sem dansinn færðist til vegna veikinda. Minni foreldra á Kisudeild og Bangsadeild á að geyma boðskortin sem fóru í hólfin í gær því að þar kemur fram tímasetning síðasta danstímans.... [ nánar ]
Mynd með frétt16. nóv. 2010

Dagur íslenskrar tungu

Í dag á degi íslenskrar tungu vorum við með skuggaleik í salnum. Grænu, rauðu og gulu hóparnir á eldri deildum fluttu vísur og söng í tilefni dagsins.... [ nánar ]
Mynd með frétt05. nóv. 2010

Fyrsti snjórinn og opið á milli deilda

Það var mikil eftirvænting í börnunum að fara út og fá að leika í fyrsta snjó vetrarins. ... [ nánar ]
Mynd með frétt02. nóv. 2010

Blái hópur í heimsókn í Flataskóla

Hópnum var boðið að koma og kynna sér bókasafnið í skólanum.... [ nánar ]
Mynd með frétt01. nóv. 2010

Kirkjuból 25 ára í dag.

Leikskólinn á afmæli í dag og við gerðum okkur glaðan dag í tilefni þess.... [ nánar ]
Mynd með frétt29. okt. 2010

Samráð með matráð

Fulltrúar frá Kisudeild og Bangsadeild hitta matráð einu sinni í mánuði og koma með óskir varðandi hádegismat. ... [ nánar ]

Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi